Sigurbjörn Árni fer yfir Heimsmeistaramótið í frjálsum íþróttum
Update: 2025-09-11
Description
Heimsmeistaramótið í frjálsum íþróttum fer fram í Tókýó dagana 13.-21. september. Sigurbjörn Árni sem við þekkjum öll af sjónvarpsskjánum þegar hann lýsir mótunum með sinni einstakri snilld. Sigurbjörn æfði frjálsar og eftir að hafa fylgst með öllum þessum stórmótum síðustu ára þá er hægt að kalla hann sérfræðinginn.
Bjössi og Silja fóru yfir keppnisgreinarnar og sigurstranglegasta íþróttafólkið og ýmislegt fleira. Það getur oft verið skemmtilegra að horfa á íþróttafólkið þegar maður þekkir aðeins til þess.
Ísland á þrjá keppendur á mótinu
- Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir keppir í sleggjukasti 14. september
- Sindri Hrafn Guðmundsson keppir í spjótkasti 17. september
- Erna Sóley Gunnarsdóttir keppir í kúluvarpi - 20. september
Við vonumst til að þetta geri mótið enn meira spennandi fyrir ykkur.
Gleðilegt HM
Fylgdu endilega Klefanum á instagram: @klefinn.is
Comments
In Channel