Discover4. vaktin67 - Kristín Þórsdóttir - Kynlífsmarkþjálfi
67 - Kristín Þórsdóttir - Kynlífsmarkþjálfi

67 - Kristín Þórsdóttir - Kynlífsmarkþjálfi

Update: 2025-11-12
Share

Description

Við fengum til okkar hana Kristínu Þórsdóttir sem rekur fyrirtækið Eldmóður.

Hún er vottaður markþjálfi og kynlífs-markþjálfi ásamt því að vera Cranio meðferðaraðili. Hún starfar einnig hjá Móar Stúdíó og býður upp á námskeið og fyrirlestra. 

Við vildum fá inn manneskju til að ræða opinskátt um þetta málefni vegna þess að þegar foreldrar eiga fatlað eða langveikt barn er nánd, kynlíf og sambandið oft eitthvað sem fær minna rými – bæði af tímaleysi, álagi og þreytu. 

Kristín er einlæg og talar um lífið eins og það er. Spjallið okkar fór í flæði og við töluðum um makamissi og sorgina, við fórum í afleiðingar áfalla, umræðu um kynferðisofbeldi og afleiðingar þess. Í þættinum fórum við á dýptina í umræðunum. Kristín segir frá sinni sögu þegar hún missti maka sinn ung með 3 börn, sínum áföllum og hvernig hún hefur unnið úr sínum lífsreynslum eða lært að lifa með þeim.

Við förum inn á umræður sem gætu reynst erfiðar fyrir einhverja. Við nefnum einnig nokkra staði /samtök í þættinum sem hægt er að leita aðstoðar.

Þá viljum við benda á:

-Stígamót

-Bjarkarhlíð

-Píeta samtökin 


Þessi þáttur er í boði:


-Sjónarhóls - Ráðgjafarmiðstöðin Sjónarhóll er fyrir fjölskyldur barna með sérþarfir. Þjónustan er ókeypis og ekki er þörf á tilvísun. Það eru allir velkomnir.

Eitt helsta markmið Sjónarhóls er að stuðla að því að forráðamenn barna með stuðningsþarfir geti nýtt sér almenna lögbundna þjónustu og komist í samband við önnur úrræði sem gætu gagnast þeim.

sjonarholl.is

-Góðvildar - Styrktarfélagið Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra. Hægt er að styrkja Góðvild og með því er verið að styðja við fjöldann allan af verkefnum sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna. 

godvild.is - Kt. 660117-2020 Reikn. 0301-26-660117

Mobility Aid:

Mobility er með bæði verslun sem er staðsett í Urriðaholtsstræti 24 - og er Opin alla virka daga frá 11:00-16:00 og hjálpartækjaleigu sem býður uppá ýmis hjálpartæki til leigu bæði til lengri og skemmri tíma. Lágmarksleiga er yfirleitt 3 dagar.Þau bjóða uppá útkeyrslu á Höfuðborgarsvæðinu á opnunartíma verslunar gegn 5.000kr sendingargjaldi. Einnig er send út á land á kostnað leigutaka. Þau eru með mikið af lausnum í boði, og hægt er að senda þeim fyrirspurn á info@mobility.is eða hringja í síma 578-3600.

Til að skoða úrvalið í verslun kíktu inn á mobility.is

Mobility Ehf og Sjúkratryggingar Ísland (SÍ) hafa gert samninga sín á milli um kaup á hjálpartækjum og heilbrigðisvörum í ákveðnum flokkum fyrir þá sem eru sjúkratryggðir hér á landi samkvæmt lögum um sjúkratryggingar.


Comments 
In Channel
64. Freyja Haraldsdóttir

64. Freyja Haraldsdóttir

2025-10-1701:35:21

54. NPA miðstöðin

54. NPA miðstöðin

2025-07-2101:30:55

loading
00:00
00:00
x

0.5x

0.8x

1.0x

1.25x

1.5x

2.0x

3.0x

Sleep Timer

Off

End of Episode

5 Minutes

10 Minutes

15 Minutes

30 Minutes

45 Minutes

60 Minutes

120 Minutes

67 - Kristín Þórsdóttir - Kynlífsmarkþjálfi

67 - Kristín Þórsdóttir - Kynlífsmarkþjálfi

Hlaðvarpið 4 vaktin