Elísabet Reynis næringarfræðingur um magasýruna, magasýrulyf, meltinguna, samsetningu máltíða, D-vítamín og margt fleira
Description
Magasýrur, melting og næring – þegar vísindin og reynslan mætast
Í þessum þætti spjöllum við við Elísabetu Reynisdóttur, næringarþerapista og næringarfræðing, sem hefur áratuga reynslu á sviði heilsu og næringar. Samræðan spannar víðan völl — frá magasýrum og meltingu yfir í samsetningu máltíða, vítamín, og dýpri spurningar um hvernig við getum hlustað á líkamann.
Við ræðum meðal annars:
🔬 Magasýrur og melting: hvers vegna magasýra er mikilvæg fyrir upptöku næringarefna og hvaða hættur geta fylgt langvarandi notkun magasýruhamlandi lyfja.
🍽️ Matarsamsetningar: er betra að borða prótein og kolvetni sitt í hvoru lagi?
🌞 Vítamín: Beta segir okkur frá sögunni þegar Rannsóknarstofa næringarfræðinnar á Íslandi hótaði að kæra hana til Landlæknis í byrjun Covid fyrir að ráðleggja stóra skammta af D, A og C-vítamínum í grein á mbl.is.
🇮🇹🇨🇭 Reynsla erlendis: hvað hún lærði á Ítalíu og í Sviss, og hvernig sú þekking hefur mótað sýn hennar á heilsu og jafnvægi líkamans.
Þetta er hlýtt og forvitnilegt spjall, þar sem fræðin, reynslan og innsæið mætast – með áherslu á að skilja líkama okkar betur og efla eigin heilunarmátt.
💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur:
🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. Minnum á lífræna ísinn þeirra og sítrónu grísku jógúrtina.
💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. Nýtt jólabragð komið - og svo má ekki gleyma creatine happy hydrate.
🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. Geggjuð lagkaka mætt á svæðið fyrir jólin.
🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. greenfit.is
🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. husaskjol.is
🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins fjögur ár í röð samkvæmt Maskínu. Hægt að skrá sig á námskeið og kaupa gjafakort í SPA-ið þar fyrir jólin.
🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins - minnum á lífræna merki Nettó Ánglamark - geggjað í baksturinn fyrir jólin.



