Seinni níu

Hlaðvarp um golf. Allir léttir. Þáttastjórnendur eru Logi Bergmann & Jón Júlíus Karlsson

#30 - Margeir bíður enn eftir ásnum

Margeir Vilhjálmsson er gestur okkar þessa vikuna í Seinni níu. Hann er frábær kylfingur að eigin sögn með um 1 í forgjöf. Hann segir okkur frá því hvernig hann byrjaði í golfi en í kjölfarið hefur Margeir orðið mjög áberandi karakter í íslensku golfi. Margeir var um tíma framkvæmdastjóri hjá Golfklúbbi Reykjavíkur og tók virkan þátt í uppbyggingu á Korpúlfsstaðavelli og Básum. Við fórum yfir atvikið á Akureyri árið 2022 sem varð þess valdandi að Margeir var dæmdur í keppnisbann. Einnig kom í ljós að hann hefur ekki farið holu í höggi þrátt fyrir að hafa spilað golf í 39 ár. Ýmislegt fleira bar á góma. Margeir segir okkur frá golfkennarastarfinu og sömuleiðis frá Black Sands verkefninu sem því miður varð hruninu að bráð en sá golfvöllur hefði orðið einn glæsilegasti golfvöllur landsins. Powerrank og spurning vikunnar. Frábær þáttur sem við getum óhikað mælt með. Seinni Níu er í boði: ✈️- PLAY 💊- Unbroken 👟- ECCO ⛳- Eagle Golfferðir 🚗- XPENG 🧼- Lindin bílaþvottastöð 🏚️ - Betri stofan

10-18
56:37

#29 - Ólafía Þórunn gerir upp magnaðan feril

Gestur okkar þessa vikuna í Seinni níu er Ólafía Þórunn Kristinsdóttir fyrrverandi atvinnukylfingur. Ólafía lagði keppniskylfurnar á hilluna fyrir tveimur árum en hún er eini íslenski kylfingurinn til að leika á öllum fimm risamótunum í keppnisgolfi kvenna. Ólafía var valin íþróttamaður ársins árið 2017. Í þættinum fer Ólafía yfir ferilinn og segir okkur frá því nýju fyrirtæki sem hún er að stofna. Ólafía kemur með Powerrank yfir fimm bestu kylfinganna sem hún hefur leikið með. Nelly Korda, Charley Hull og Arnold Palmer koma þar við sögu. Frábær þáttur sem á erindi við alla kylfinga og íþróttáhugafólk. Seinni Níu er í boði: ✈️- PLAY 💊- Unbroken 👟- ECCO ⛳- Eagle Golfferðir 🚗- XPENG 🧼- Lindin bílaþvottastöð

10-10
57:40

#28 - Freyr Gígja lét Eurovision-stjörnu heyra það á Kiðjabergsvelli

Þó golfsumarið sé að líða undir lok þá höldum við ótrauðir áfram í hlaðvarpinu Seinni níu. Að þessu sinni kemur til okkar fréttamaðurinn Freyr Gígja Gunnarsson en margir ættu að kannast við röddina í fréttatímum RÚV. Freyr Gígja leikur aðallega golf á Hvaleyrarvelli og er fínn kylfingur með 9,9 í forgjöf. Freyr er mjög stöðugur kylfingur en þarf að eigin sögn að bæta púttin. Þáttastjórnendur hvöttu Frey til að brjóta bensínstöðvarpútterinn og kaupa nýjan pútter. Freyr segir frá því þegar hann missti sig við Eurovision-stjörnu á Kiðjabergsvelli. Seinni Níu er í boði: ✈️ - PLAY 💊 - Unbroken 👟 - ECCO ⛳ - Eagle Golfferðir 🚗 - XPENG ✨ - Lindin bílaþvottastöð

10-03
50:30

#27 - Frímann Gunnarsson spilar Oxford golf

Leikarinn Gunnar Hansson mætti til okkar í Seinni níu. Gunnar er mjög öflugur kylfingur og var lægst með um 3,5 í forgjöf. Hann spilaði mikið golf á sínum yngri árum og hefur tvívegis farið holu í höggi. Jafnframt fórum við aðeins yfir golfáhuga eins þekktasta karakters Gunnars, sem er hann Frímann Gunnarsson. Sá þykir margt bogið við hefðbundnar golfreglur og hefur því tekið upp sínar eigin reglur. PLAY - XPENG - UNBROKEN - ECCO- LINDIN- EAGLE GOLFFERÐIR

09-27
01:01:18

Seinni Níu Masterclass - Það afþakkar enginn auka 20-30 metra

Seinni Níu Masterclass er þáttur fyrir kylfinga sem vilja kafa aðeins dýpra. Í þessum þætti fáum við í heimsókn hann Bjarna Má Ólafsson frá Golfstöðinni sem sérhæfir sig í styrktarþjálfun fyrir kylfinga. Bjarni Már fræðir okkur um kosti þess að stunda styrktarþjálfun samhliða því að spila golf. Styrktarþjálfun getur verið góð leið til að ná í auka lengd af teig og fyrirbyggja meiðsli. Við fáum að heyra skemmtilegar dæmisögur af kylfingum sem hafa óvænt lengt sig hressilega af teig eftir að hafa byrjað í styrktarþjálfun. Mjög fróðlegur þáttur sem ætti að vera öllum kylfingum hvatning til að styrkja sig. ✈️- PLAY 🚗- XPENG 💊- UNBROKEN 👟- ECCO ✨- LINDIN ⛳- EAGLE GOLFFERÐIR

09-23
35:00

#26 - Hermann í Kemi elskar 60 gráðu fleygjárnið

Nýjasti gestur okkar í Seinni níu er Hermann Guðmundsson sem rekur fyrirtækið Kemi. Hermann er duglegur kylfingur sem hefur lægst verið með um 10 í forgjöf. Hann spilar mikið golf í Bandaríkjunum og uppáhaldskylfan hans er 60° fleygjárnið. Logi velur fimm fallegstu par-3 holur landsins. Seinni Níu er í boði: ✈️ - PLAY 💊 - Unbroken 👟 - ECCO ⛳ - Eagle Golfferðir 🚗 - XPENG ✨ - Lindin bílaþvottastöð

09-20
55:45

#25 - Einar Örn hefur tvisvar farið holu í höggi

Einar Örn Ólafsson, forstjóri flugfélagsins Play, er nýjasti gestur okkar í Seinni níu. Hann er kylfingur með um 15 í forgjöf en náði lítið að spila golf í sumar eftir að hafa tekið við sem forstjóri hjá Play í vor. Einar Örn hefur mikið spilað erlendis og hefur tvívegis farið holu í höggi á erlendri grundu. Við erum með Powerrank á fimm bestu golfvöllunum á Alicante svæðinu og hvaða velli á að forðast á þeim slóðum. Hvar er algengast að kylfingar fari holu í höggi? Við komumst að því í þættinum. Hlustendur Seinni níu fá 20% afslátt hjá Unbroken með að nota kóðann Seinni9 á unbroken.is Seinni Níu er í boði: ECCO - XPENG - Unbroken - Lindin - Bríó - Eagle Golfferðir

09-12
56:15

#24 - Eyfi spilar ekki í rigningu

Tónlistamaðurinn ástsæli Eyjólfur Kristjánsson er næsti gestur okkar í Seinni níu. Eyfi byrjaði í golfi um aldamótin og fékk mikla golfbakteríu. Hann hefur hins vegar sjaldan spilað eins lítið golf og hann hefur gert í ár og eru nokkrar ástæður fyrir því. Eyfi segir okkur frá því þegar hann fór holu í höggi á Korpúlfstaðavelli, við fáum magnað Powerrank yfir fimm bestu lögin hjá Eyfa, og svo kemur í ljós að uppáhaldskylfingar eru nokkuð óvæntir kappar á PGA-mótaröðinni. Frábær þáttur í alla staði! Þátturinn er í boði: XPENG - ECCO - Unbroken - Eagle Golfferðir - Bríó

09-05
49:37

#23 - Hlynur Geir á djamminu með Shane Lowry

Hlynur Geir Hjartarson, framkvæmdastjóri hjá Golfklúbbnum á Selfossi, kom í heimsókn til okkar í Seinni níu. Hann fór yfir frábæran keppnisferil í íslensku golfi, sagði okkur frá uppbyggingu golfsins á Selfossi og sagði okkur einnig magnaða sögu af sjálfum sér á djamminu með Íranum Shane Lowry í Tórínó. Magnaður þáttur! Þátturinn er í boði: ECCO - XPENG - Unbroken - Lindin - Eagle Golfferðir

08-31
01:00:08

#22 - Kári tilkynnir að nýr Urriðavöllur verði hannaður af Robert Trent Jones Jr.

Kári Sölmundarson, formaður hjá Golfklúbbnum Oddi, ræðir við okkur í Seinni Níu um stækkun Urriðavallar í 27 holur. Kári fer yfir stöðu mála hjá Golfklúbbnum Oddi og þar á bæ eru menn stórhuga. Búið er að ráða Robert Trent Jones Jr. í að hanna Urriðavöll sem 27 holu golfsvæði en sá hefur hannað marga af þekktustu golfvöllum í heimi. Kári segir okkur frá því hvernig hann byrjaði í golfi og hvernig hann varð óvænt formaður í einum af stærstu golfklúbbum landsins. Logi velur fimm erfiðustu par5 holur landsins. Ótrúleg saga af holu í höggi á Kálfatjarnarvelli um helgina. ECCO - Lindin - Unbroken - Eagle Golfferðir

08-20
54:00

#21 - Theodór Hervarsson fer yfir golfveðrið

Í nýjasta þætti af Seinni níu kemur til okkar stjörnuveðurfræðingurinn Theodór Freyr Hervarsson. Hann er fínn kylfingur með um 13 í forgjöf. Teddi svarar áleitnum spurningum golfáhugamanna um íslenska veðrið en sjálfur segist hann geta spila golf í nánast í hvaða veðri sem er. Teddi er fyrrum Íslandsmeistari í fótbolta með liði ÍA en veðurfræðin á hug hans allan í dag og starfar hann hjá Veðurstofu Íslands ásamt því að fara með veðurfréttir á RÚV. Logi er í beinni frá Washington DC og segir okkur frá fyrsta golfhringnum vestanhafs. Seinni níu er í boði: ECCO - Unbroken - Eagle Golfferðir - Lindin

08-15
47:48

#20 - Áfengið dró Rúnar Frey í golf

Gestur okkar í Seinni níu þessa vikuna er listamaðurinn Rúnar Freyr Gíslason. Hann er þokkalegur kylfingur sem fór holu höggi á mjög áhorfendavænni golfholu. Rúnar er þeim hæfileika gæddur að hann fer alltaf að hlægja þegar hann meiðir sig. Hann er með 19 í forgjöf, meðlimur í Nesklúbbnum, og spilar helst með Loga Bergmann. Frábært spjall sem er óhætt að mæla með! Þátturinn er í boði: ECCO - Unbroken - Lindin - Eagle Golfferðir

08-09
52:33

#19 - Hjörvar bindur ekki bagga sína sömu hnútum og samferðamennirnir

Hlaðvarpskóngur Íslands, Hjörvar Hafliðason, mætti til okkar í Seinni níu og ræddi um golf. Þrátt fyrir frekar stuttan golfferil þá hefur Hjörvar leikið golf víða um heim og vill helst spila golf í og við Sóvetríkin sálugu. Hann hefur t.d. farið í golfferð til Litháen og er á leiðinni til Eistlands. Við fórum yfir golfferilinn hjá Hjörvari, hvaða kylfur hann notar og hvern hann styður í atvinnumannagolfinu. Líflegt og skemmtilegt spjall eins og við er að búast þegar Hjörvar er annars vegar. ECCO - Unbroken - Lindin - Eagle Golfferðir

07-31
01:04:54

#18 - Helgi Dan myndi ekki byrja í golfi í dag

Helgi Dan Steinsson er næsti gestur okkar í Seinni níu. Hann er öflugur kylfingur með um +2 í forgjöf. Helgi er framkvæmdastjóri hjá Golfklúbbi Grindavíkur og ræðir aðeins við okkur um stöðuna á Húsatóftavelli. Farið er yfir Opna breska og Íslandsmótið í golfi. Farið yfir ótrúlegt atvik þegar Helgi "sló" Steina Hallgríms úr keppni. Helgi segir okkur einnig frá því þegar hann fór holu í höggi á par4 braut. Þátturinn er í boði: ECCO - Unbroken - Lindin - Eagle Golfferðir - Collab

07-22
57:13

#17 - Upphitun fyrir Íslandsmót og Opna breska með Palla Ketils

Framundan er ein stærsta helgi ársins í golfinu. Af þeim sökum hlóðum við í upphitunarþátt fyrir Íslandsmótið í golfi og Opna breska meistaramótið sem hefst á morgun, fimmtudag. Páll Ketilsson, ristjóri Kylfings.is, kom til okkar í spjall og ræddi einnig við okkur um sinn heimavöll, Hólmsvöll í Leiru, þar sem Íslandsmótið fer fram. Við spáðum í spilin fyrir mótin og fórum líka yfir hvernig best væri að veðja á mótin. ECCO - Unbroken - Lindin - Eagle Golfferðir

07-17
01:07:08

#16 - Golfsálfræði með Hafrúnu Kristjáns

Gestur vikunnar hjá okkur í Seinni níu er Dr. Hafrún Kristjánsdóttir sem er prófessor við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík. Hafrún hefur starfað sem íþróttasálfræðingur um árabil og er á leið á sína fjórðu ólympíuleika þar sem hún aðstoðar okkar fremsta íþróttafólk. Hafrún er kylfingur með um 20 í forgjöf en var áður landsliðskona í handbolta. Hún viðurkennir að kasta stundum kylfum í bræðiskasti. Í þættinum ræðir hún við okkur um golfið og golfsálfræði. Einnig segir hún okkur frá íslenskri sálfræðirannsókn sem HR og GSÍ ætla að ráðast í. Þátturinn er í boði: ECCO - Unbroken - Eagle Golfferðir - Lindin

07-15
53:06

#15 - Ragga Sig: „Fékkstu fugl elskan?“

Gestur okkar þessa vikuna í Seinni Níu er hún Ragnhildur Sigurðardóttir sem er fjórfaldur Íslandsmeistari í golfi. Hún hefur gert golfið að sínu aðalstarfi og starfar sem bæði golfkennari og fararstjóri. Í skemmtilegu spjalli fer hún aðeins yfir golfferilinn, gefur góð ráð fyrir meistaramótin og segir okkur frá því þegar hún fór holu í höggi á par4 braut. Logi er með powerrank og velur fimm furðulegustu holur landsins. ECCO - Unbroken - Lindin - Eagle Golfferðir - Ölgerðin

07-09
52:24

#14 - Finnur sem allt vinnur

Finnur Freyr Stefánsson er næsti gestur okkar í Seinni níu. Hann vann í vor Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik í sjöunda sinn sem þjálfari sem er magnað afrek. Finnur stundar golf af miklu kappi og er með um 18 í forgjöf. Hann er félagi í Golfklúbbnum í Mosfellsbæ en 5. holan á Hlíðavelli er Finni ekki að skapi. Powerrank, spáð í holu höggi fyrir Loga og sérstaklega krassandi spurning vikunnar. ECCO - Unbroken - Lindin - Eagle Golfferðir - Collab

07-02
48:45

#13 - Inga Lind: „Ég er ofmetinn nýgræðingur“

Gestur vikunnar í Seinni níu er fjölmiðlakonan Inga Lind Karlsdóttir sem er kylfingur með um 21 í forgjöf. Hún stýrir þættinum Golfarinn sem sýndur er á Stöð2 og hefur algjörlega fallið fyrir golfíþróttinni á síðustu árum. Hún ræðir um golfið og deilir með okkur nokkrum frábærum heilræðum sem allir kylfingar ættu að tengja við. Í þætti vikunnar veljum við einnig fimm bestu 9 holu velli á landsbyggðinni og ótrúlegur fróðleikur í spurningu vikunnar. Seinni níu er í boði: Ecco - Unbroken - Lindin - Eagle Golfferðir

06-27
53:27

#12 - Úlfar hefur ekki farið holu í höggi í 40 ár!

Úlfar Jónsson er gestur vikunnar í Seinni níu. Hann hefur sex sinnum staðið uppi sem Íslandsmeistari í golfi og náði þeim áfanga að vinna Íslandsmeistaratitilinn 6 sinnum á sjö árum. Í dag vinnur Úlfar sem PGA golfkennari ásamt því að vinna hjá GKG. Úlfar ræðir einnig við okkur um Opna bandaríska meistaramótið sem lauk um síðustu helgi sem hann telur eitt það risamót á síðustu árum. Powerrank og ýmislegt skemmtilegt til viðbótar. ECCO - Unbroken - Lindin - Eagle Golfferðir

06-20
55:07

Recommend Channels