DiscoverTilveran
Tilveran
Claim Ownership

Tilveran

Author: Kristborg Bóel Steindórsdóttir

Subscribed: 58Played: 364
Share

Description

Tilveran er hlaðvarp fyrir miðaldra konur í tilvistarkreppu! Sjálf hætti ég að skilja lífið fyrir nokkrum árum og í stað þess að ráða mér hreinlega aðstoðarmanneskju ákvað ég að taka völdin í mínar hendur og stofna hlaðvarp þar sem gæti rætt við einstaklinga sem ég lít upp til og búa yfir reynslu eða vitneskju sem ég veit að mun nýtast mér og okkur öllum.

Slagorð þáttarins er: Þetta verður allt í góðu, við finnum út úr þessu saman.
12 Episodes
Reverse
Síðasti gestur ársins 2025 er Berglind Guðmundsdóttir, oft kennd við samfélagsmiðil sinn Lífsgleðina. Hún er hjúkrunarfræðingur, markþjálfi, gusumeistari, stjórnmálakona og almenn gleðisprengja. Berglind er kona sem lætur verkin tala því eins og hún segir sjálf, þá fáum við sjaldnast tækifæri á silfurfati, heldur þurfum að hafa fyrir því að láta drauma okkar rætast.
Gestur vikunnar er séra Hildur Eir Bolladóttir, prestur í Akureyrarkirkju. Í þættinum ræðum við Hildur Eir hlið jólahátíðarinnar sem lítið er rædd - hversu flókið, fallegt en sorglegt það getur verið að vera manneskja á jólum. Jólahátíðin getur reynst erfiður tími fyrir svo margra hluta sakir þar sem systurnar gleði og sorg haldast í hendur.
Gestur vikunnar er Halldóra Skúladóttir. Halldóra er sjúkraliði, markþjálfi og sérfræðingur í fræðslustjórnun, en hefur síðustu ár helgað sig ráðgjöf og fræðslu sem snýr að breytingaskeiði kvenna. Halldóru kenna margir við samfélagsmiðla sína Kvennaráð, en hún heldur bæði úti vinsælli Instagramsíðu og heimasíðu sem er stútfull af fróðleik, en þar má einnig bóka ráðgjöf, fyrirlestra og námskeið.
Gestur vikunnar er Soffía Dögg Garðarsdóttir. Soffía Dögg er blómaskreytir og fagurkeri en er líklega þekktust fyrir að halda úti hinni geysivinsælu síðu Skreytum hús, en meðlimir síðunnar á Facebook eru rúmlega 85.000 talsins og rúmlega 21.000 á Instagram. Í þættinum tölum við Soffía hinsvegar ekki um litapallettur eða nýjustu tískustrauma í innanhússhönnun, heldur köfum á dýpið og snertum á málefnum á borð við alkóhólisma og ófrjósemi.
Gestur vikunnar er Erla Björnsdóttir, stofnandi og framkvæmdarstjóri Betri svefns. Erla er sálfræðingur með doktorspróf í líf- og læknavísindum þar sem hún rannsakaði svefnleysi, andlega líðan og lífsgæði hjá sjúklingum með kæfisvefn. Erla er einnig konan á bak við íslenska smáforritið SheSleep, app fyrir allar konur sem er annt um sinn svefn og vilja hlúa vel að heilsunni. Erla vakið athygli á árstíðum tíðarhringsins, en líkamleg virkni og líðan eru því breytileg eftir tíðahringnum. Efnaskipti breytast, heilastarfsemin er mismunandi og styrkur streituhormónsins kortisóls er breytilegt eftir því hvar í tíðahringnum konur eru staddar. Ótrúlega fróðlegar og áhugaverðar pælingar sem gaman er að velta fyrir sér.
Unnur Elísabet Gunnarsdóttir er gestur vikunnar. Unnur Elísabet er leikstjóri, leikkona, sviðshöfundur, handritshöfundur, tónskáld og danshöfundur. Auk þess er hún jógakennari og kennir fólki líka hvernig það getur hækkað sína tíðni með einföldum ráðum. Hún fer yfir það og svo miklu meira í þættinum, auk þess sem talið leiðist inn á óvæntar og spennandi brautir - nema hvað!
Gestur þáttarins er tónlistarkonan Stína Ágústsdóttir. Fyrir utan að vera stórkostleg söngkona og frábær lagahöfundur eru textar Stínu ein allsherjar valdefling fyrir konur, en í þeim syngur hún meðal annars um um það flókna samband sem hún hefur átt við líkama sinn og hversu snúið það getur reynst að vera foreldri. Einnig þá ákvörðun sína að láta ekki skoðanir samfélagsins og annars fólks stjórna því hvernig hún lifir sínu lífi; „Ég hef lengi vel reynt að haga mér rétt en svo á seinni árum er ég bara hætt að hafa áhuga á því. Við Stína ræðum þetta, ferilinn hennar og hversu miklu máli það skiptir að hlusta á eigið innsæi og fylgja hjartanu.
Gestur þáttarins er Hanna Lilja Oddgeirsdóttir læknir og framkvæmdastjóri Gyna Medica, sem er lækninga- og heilsumiðstöð fyrir konur. Starfsemi Gyna Medica hefur það að markmiði að styðja, fræða og fylgja konum eftir á umbreytingartíma breytingaskeiðsins. Í þættinum ræðum við Hanna Lilja saman um þetta lífsskeið kvenna sem hefur verið svo mikið tabú gegnum aldirnar. 
#04 - Kristín Þórs

#04 - Kristín Þórs

2025-10-2201:12:37

Kristín Þórsdóttir og er stofnandi og eigandi Eldmóðs ehf. Í þættinum segir Kristín sína sögu sem varð til þess að hún fór í þá átt sem hún er í dag. Hún segir okkur einnig hvernig við getum endurheimt tengslin við okkur sjálfar sem við flestar erum líklega löngu búnar að glopra niður. Kristín er vottaður markþjálfi og kynlífs-markþjálfi. Þá er hún höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferðaraðili og með menntun í NA-shamanisma frá skóla Robbie Warren. Hún er kennari í Móum studio en starfar einnig fyrir Kraft, Ljósið og Sorgarmiðstöðina.
#03 - Anna Sigurðardóttir

#03 - Anna Sigurðardóttir

2025-10-1501:12:38

Anna Sigurðardóttir er annar viðmælandi Tilverunnar. Anna er sérfræðingur í klínískri sálfræði fullorðinna og eigandi Samkenndar heilsuseturs. Anna hefur sjálf lent í áföllum sem leiddu til alvarlegs heilsubrests, en hún hefur deilt sinni reynslu og þekkingu á Instagram-síðu sinni. Það gerir hún einnig í okkar samtali af mikilli einlægni, mýkt en þó þeirri glettni sem hana einkennir. Þetta er þáttur sem þú vilt eiga í þinni verkfærakistu.
Fyrsti gestur Tilverunnar er Guðrún María Hafþórs. Ég hefði ekki getað byrjað þessa vegferð betur, en Guðrún María hefur einstakt lag á því að horfa á lífið og þær áskoranir sem það færir á jákvæðan hátt, sem hafa svo sannarlega ekki látið hana óáreitta. Guðrún María er markþjálfi og brennur fyrir því að gleðja aðra og láta gott af sér leiða. Við ræðum um það slönguspil sem lífið er, andlát föður hennar, heilsuorlofið sem hún er í um þessar mundir og fleira og fleira. Ekki missa af þessari gleðisprengju sem er engri lík!
Í þessum stutta og krúttlega kynningarþætti fer ég yfir það hvernig hugmyndin að Tilverunni kviknaði og af hverju ég tel hana eiga erindi.
Comments