Þak yfir höfuðið
Update: 2015-11-07
Description
Hvernig gengur okkur að koma okkur upp þaki yfir höfuðið? Í þættinum er farið í heimsókn til hjóna sem eru að gera upp draumahúsið á Akureyri og bankað uppá hjá eldri borgara á Húsavík sem er að minnka við sig. Þá er fjallað um ástandið á Borgarfirði eystra þar sem eftirspurn eftir húsnæði er meiri en framboðið og rölt um móa í Mývatnssveit þar sem verið er að leggja glænýja götu fyrir ný íbúðarhús.
Í síðari hluta þáttarins er farið í heimsókn í póstflokkunarstöð Íslandspósts í Reykjavík.
Umsjón: Þórgunnur oddsdóttir
Í síðari hluta þáttarins er farið í heimsókn í póstflokkunarstöð Íslandspósts í Reykjavík.
Umsjón: Þórgunnur oddsdóttir
Comments
In Channel



