#94. - Hamfarir á Grundartanga og meint bakslag
Description
Í þættinum verður birt brot úr viðtali við bandarískan gjörgæsluhjúkrunarfræðing, Joanne Blank að nafni, sem starfað hefur á Landspítalanum undanfarin ár. Hún sótti um ríkisborgararétt hér á landi í fyrra en Alþingi ákvað að hafna beiðninni. Nánar verður auk þess fjallað um mál hennar í sunnudagsblaði Morgunblaðsins.
Þá mæta á vettvang þingmennirnir Eiríkur Björn Björgvinsson, varaformaður atvinnuveganefndar þingsins og þingmaður Viðreisnar og Ólafur Adolfsson þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins. Þeir fara yfir stöðuna sem upp er komin á Grundartanga eftir að mikilvægur búnaður skemmdist hjá Norðuráli en bilunin mun hafa gríðarleg áhrif á afkastagetu álversins á komandi mánuðum og þar með á útflutningstekjur Íslands.
Í samtali við þá er einnig rætt um þær skattahækkanir sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur ráðist í og hvaða áhrif þær aðgerðir munu hafa á atvinnulífið í landinu. Þá verður einnig rætt um fyrirhugaðar breytringar á búvörulögum en þungt hljóð er í bændum víða um land vegna þeirra.
Í fréttum vikunnar er rætt við þær Hlédísi Mareni Guðmundsdóttur, félagsfræðing og fyrrverandi blaðamanna og Elín Karlsdóttir, varaformann Sambands ungra framsóknarmanna og læknanema.
Þær munu ræða hið meinta bakslag sem mörgum hefur orðið tíðrætt um í tengslum við jafnréttisbaráttuna hér á landi. Þá verður drepið á umræðu um íslenskukennslu í skólakerfinu hér á landi og stöðu Miðflokksins og Framsóknar.





