Kristín Þórhallsdóttir - Kraftlyftingakona
Description
Kristín Þórhallsdóttir er sterkasti dýralæknir í heiminum, hún byrjaði í Kraftlyftingum 35 ára og er verðlaunahafi á Heims- og Evrópumeistaramótum, þá hefur hún meðal annars orðið Evrópumeistari og á Evrópumet.
Kristín ræðir ferilinn, hvernig hún kynntist íþróttinni og komst hratt í fremstu röð, þá fer hún aðeins yfir Kraftlyftingarnar, en þar er keppt í samanlögðum árangri í hnébeygju, bekkpressu og réttstöðulyftu. Ef þú ert að spá í tölum Kristínar þá á hún 230 kg í hnébeygju, 125 kg í bekkpressu, 240 kg í réttstöðulyftu.
Kristín er dýralæknir og tveggja barna móðir, en annar strákurinn hennar er langveikur með sjaldgæft heilkenni. Hvetjum þig til að hlusta, það er greinilega aldrei of seint að byrja á nýju áhugamáli!
Þátturinn er í boði Auður, Útilífs, Lemon, Nutrilenk og Hafið fiskverslun.
Þú finnur okkur á instagram
@kristin_thorhallsdottir
@Klefinn.is
@Siljaulfars