DiscoverFram og til baka
Claim Ownership
Fram og til baka
Author: RÚV
Subscribed: 19Played: 539Subscribe
Share
© RÚV
Description
Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.
324 Episodes
Reverse
Fram og til baka 4 febrúar 2018
Umsjón Felix Bergsson og Margrét Blöndal
Lag dagsins - Ordinay World - Duran Duran
Fimman - Oddný Sturludóttir menntunarfræðingur og píanókennari
Fimman hennar Oddnýjar var tónlist. Hún talaði um tónlistarmenn og hljómsveitir, já og bætti einum tónlistarkennara inn í mixið. Svona var listinn:
Björk og Biophilia
Jeff Buckley
Svana Víkingsdóttir, frábær tónlistarkennari
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Hljómsveitin Ensími
Alþjóðlegi krabbameinsdagurinn
Sunnudagurinn 4. febrúar er Alþjóðlegi krabbameinsdagurinn. Af því tilefni býður Krabbameinsfélag Íslands almenningi í heimsókn í Skógarhlíð 8 kl. 13:00-15:00. Félagið skorar einnig á stjórnvöld að beita sér fyrir auknum forvörnum gegn krabbameinum og hvetur almenning til að skrifa undir áskorunina. Halla Þorvaldsdóttir, frkvstjóri Krabbameinsfélagsins kom í kaffispjall og sagði af baráttunni við krabbamein á Íslandi og dagskrá dagsins.
Fréttagetraun - verðlaunin fóru til Guðlaugar Árnmarsdóttur
Tímaflakk Fram og til baka 1963 73, 83, 93
Í tímaflakkinu var þessi vika, 4.-11. febrúar heimsótt á árunum 1963, 1973, 1983 og 1993.
Unglingar voru í forgrunni og Æskulýðsráð Reykjavíkur hafði af þeim miklar áhyggjur árið 1963. Við heyrðum bréf úr Vikunni og kveðju úr Lögum unga fólksins. Mezzoforte voru að slá í gegn í Bretlandi og svo var það konan sem bjargaði lífi mannsins síns með því að nota drullusokkinn á ögurstundu.
Umsjón Felix Bergsson og Margrét Blöndal
Lag dagsins - Lhooq, Losing Hand (Jóhann Jóhannsson féll frá á föstudaginn)
Fimman - Hilmar Oddsson kvikmyndagerðarmaður og tónlistarmaður. Lögin sem hann vildi óska sér að hann hefði samið
Here, there and everywhere - The Beatles (verður að vera upprunaleg útgáfa af plötunni Revolver),
Walk on the Wild Side - Lou Reed (Transformer)
Sad eyed Lady of the Lowlands - Bob Dylan (bara hluti , lagið er mjög langt)
A Wolf at the door - Radiohead (Hail to the Thief)
Where are we now? - David Bowie (The Next Day)
Söngvakeppnin í gærkvöldi - símtal í Reyni Þór Eggertsson í Helsinki. Við ræddum lögin sem fóru áfram og möguleika þeirra
Fréttagetraun - sigurvegari Þorlákur Sigurbjörnsson Langhúsum Skagafirði
Tímaflakkið 1969, 79, 89, 99
Vikan 11 - 18 febrúar var merkileg og skemmtileg árin 1969, 79, 89 og 99. Það var sjómannaverkfall, búnaðarþing, Akureyringar eignuðust Íslandsmeistara í diskódansi, Dizzy Gillespie sótti okkur heim og það var mikið rifist um bjórinn. Hlustið og þér munið muna!
Fram og til baka 18.02.2018
Umsjón Felix Bergsson og Margrét Blöndal
Lag dagsins - Olivia Newton John - Physical
Fimman - Helga Möller söngstjarna. Fimman hennar eru söngkonur sem hafa haft djúp áhrif á hana í gegnum tíðina. Uppáhalds söngkonur Helgu eru:
Janis Ian
Carol King
Joni Mitchelle
Barbara Streisand
Adele
Reynir Þór Eggertsson var í símanum og ræddi lögin sem komust áfram í Söngvakeppninni í gærkvöldi. Reynir Þór lét gamminn geysa og hafði miklar skoðanir. Til dæmis fannst honum lögin þrjú sem komust áfram mun lakari en þau þrjú sem eftir sátu.
Fréttagetraunin var á sínum stað og Enok Sigurgeir Klemenson tók verðlaunin
Í tilefni konudagsins gáfum við blómvendi frá Íslenskum blómabændum og gjafabréf frá Grænum markaði, Kormáki og Skildi, Lín Design og Marshal Restaurant.
Tímaflakk dagsins var til þessarar viku árin 1962, 72, 82 og 92. Við heyrðum lagið Duke of Earl sem seinna varð Djús í glas og Midnight in Moscow sem síðar varð Nótt í Moskvu. Einnig heyrðum við ýmsar útgáfur af laginu The Lion Sleeps Tonight. Jónatan Garðarsson sagði okkur frá Svanfríði og stjörnuspá Jeane Dixon hjálpaði okkur inn í daginn.
Fram og til baka 25.02.2018
Umsjón Felix Bergsson og Margrét Blöndal
Lag dagsins - Missing, Everything but the girl frá 1996
Fimman - Silja Bára Ómarsdóttir stjórnmálafræðingur. Fimman hennar voru ferðalög í gegnum tíðina
1 Danmörk, Svíþjóð og Þýskaland í barnæsku
2 Túnis í stúdentsferð með MH.
3 Bílferðir um Bandaríkin. Silja Bára keyrði yfir landið á flutningabíl.
4 Brúðkaup í Rússlandi, nánar tiltekið St. Pétursborg
5 Kína, Víetnam og Malasía með systkinum hennar
Viðtal - Eddan 2018. Þórarinn B Þórarinsson blaðamaður spáði í spilin fyrir Edduhátíð kvöldsins
Fréttagetraun - enginn sigurvegari því enginn náði að klára þrjár spurningar.
Tímaflakk 1966, 1976, 1986, 1996
Tímaflakk dagsins kom niður í þessari síðustu viku febrúar árin 1966, 1976, 1986 og 1996. Ella Fitzgerald kom við á Íslandi en aðsókn á tónleika var dræm og kenndu menn háu miðaverði um. Ella kvartaði líka yfir kuldalegum móttökum áhorfenda. Þá vöruðu balletdansarar við hinum stórhættulega jazzballett og hvöttu foreldra að halda börnum sínum frá svo hættulegri iðju. Elizabeth Taylor skildi enn á ný við Richard Burton, Palme var myrtur og Íslandsmótið í þolfimi fór fram í Höllinni. Allt þetta og miklu meira í Fram og til baka dagsins.
Fram og til baka 4.3.2018
Lag dagsins - Peter Gabriel, Games without frontiers frá 1980
Fimman - Óskar Jónasson kvikmyndaleikstjóri
Óskar valdi sér fimm kvikmyndagerðarmenn sem hafa haft djúp áhrif á hann. Þeir voru:
Charlie Chaplin.
Martin Scorcese.
Mike Leigh.
Woody Allen.
Ruben Östlund.
Fréttagetraun
Tímaflakkið - 1960, 70, 80 og 90
Í tímaflakki dagsins voru árin 1960, 70, 80 og 90 heimsótt og komið niður í vikunni sem hófst 4. mars. Þar mátti t.d heyra um radíoáhugamann í Danmörku sem bjargaði nauðstöddum í Marokkó löngu fyrir tíma samfélagsmiðla og internets og einnig um þær ungfrúr McLennon og Bell sem settu upp mikið partýhús í ríkramannahverfi í Grimsby árið 1970 og fengu sekt fyrir. Þá kemur Úllen dúllen doff við sögu, Hemmi Gunn og íslenska landsliðið í handbolta. Svo heyrum við sjónvarpsgagnrýni sem var óneitanlega mjög óvægin.
Fram og til baka 18.03.2018
Handrit - umsjón Felix Bergsson og Margrét Blöndal
Lag dagsins - Leo Sayer When I need you frá því í mars 1977
Fimman - Gunnleifur Gunnleifsson markmaður.
Fimman hans voru markmenn sem hafa haft áhrif á hann. Við ræddum líka lauslega um Eurovision en Gulli er mikill sérfræðingur á því sviði og hefur fylgt keppninni frá barnsaldri. En fimman leit svona út:
Rinat Dasayev
Guðmundur Baldursson
Buffon
Hannes Halldórsson
Ederson
Símtal - Leifur Helgason sagði frá Bóka og bíóhátíð í Hafnarfirði en hann stendur fyrir göngu um söguslóðir Guðrúnar Helgadóttur í Hafnarfirði
Fréttagetraun. Sigurvegari var Oddur Helgi í Reykjavík og aukaverðlaun fóru til Sveins Guðfinnssonar á Akureyri
Tímaflakkið 1967, 77, 87 og 97
50 ára afmæli Framsóknarflokksins og Tímans auk 100 ára afmælis Borgarness kom þarna við sögu og einnig kvikmyndin Morðsaga frá 1977 en þar endaði allt með miklum ósköpum. Við heyrðum af Söngvakeppni Sjónvarpsins árið 1987 en Jón Bergsson í Suður Landeyjum tróð sér inn í þáttinn. Svo heyrðum við af smokkaherferðinni miklu og fæðingarvottorði Paul McCartney sem seldist á uppboði í Japan.
Umsjón - Felix Bergsson og Margrét Blöndal
Lag dagsins - 9 to Five Dolly Parton frá 1981
Fimman - Steinunn Jónsdóttir rappari og söngkona í Amabadama
Bryndís Hilmarsdottir
Margrét Pálmadóttir
Hafdís í Kramhúsinu
Reykjavíkurdætur
Ellý Vilhjálms
Símtal um farfugla. Sölvi Rúnar Vignisson líffræðingur hjá Þekkingarsetri Suðurnesja
Fréttagetraun. Sigurvegari Bjarki Sigursveinsson. Verðlaun páskaegg frá Nóa Síríus
Tímaflakk - 1961,71,81 og 91
Í tímaflakki dagsins var víða komið við eins og venjulega enda algjörlega ástæðulaust að láta steina liggja og velta þeim ekki við! Meðal þeirra sem koma við sögu eru Pétur Hoffmann og Janis Joplin, Stefán Jónsson og Sheena Easton, Mini Pops og Kysstu mig Kata, Terry Wogan, Bucks Fizz og Steinn Lárusson. Já og Skreppur Seiðkarl! Fram og til baka er skemmtilegasti og óvísindalegasti aldaspegill sem hægt er að finna.
Margrét Blöndal og Felix Bergsson verða með hlustendum í sérstakri hátíðarútgáfu af Fram og til baka á Páskadagsmorgun á Rás 2. Fortíðarþráin verður eins og áður á sínum stað þegar Bergsson og Blöndal eru annarsvegar og þau skötuhjú lofa að fara á tímaflakk til fyrri Páska. Að auki ber Páskasunnudag upp á uppáhaldsdegi allra prakkara, 1. apríl og mun þátturinn að sjálfsögðu bera svipmót af því. Þannig verða klassísk aprílgöbb skoðuð auk þess sem leitast verður við að plata hlustendur! Fram og til baka - hátíðarútgáfan. Með Bergsson og Blöndal bara á Rás 2
9.00 - 12.20
Lag dagsins - Elton John, Benny and the jets
Fimman - Unnur Ösp Stefánsdóttir, leikkona og kvikmyndagerðarmaður. Átti afmæli 6. apríl
Fimman hennar eru kvikmyndir:
Tootsie
Kramer vs Kramer
Deer Hunter
Lilya Forever
Woody Allen - Annie Hall
Símtal - Reynir Þór Eggertsson í Finnlandi
Við ræddum aðeins um þennan fyrri undanúrslitariðil í Eurovision sem margir telja firnasterkan
Fréttagetraun - sigurvegari Guðlaug Árnmannsdóttir
Tímaflakk 1964, 74, 84 og 94
Dagarnir í kringum 8 apríl árin 1964, 74, 84 og 94 voru sannarlega viðburðarríkir. Árið 64 ríkti Bítlaæði og Bítlarnir áttu því 5 lög á topp 10 í Bandaríkjunum. Ótrúlegur árangur. Á sama ári mátti sjá mynd af nýjustu flugfreyjunni á forsíðu Mánudagsblaðsins og kostum hennar líst. 1974 var þjóðin plöguð af verkföllum og 1984 voru allir að tala um Albert Guðmundsson og hundinn hans, hana Lucy. Árið 1994 gekk allt út á borgarstjórnarkosningar og þar kom Ingibjörg Sólrún Gísladóttir eins og stormsveipur til sögunnar.
Umsjón Felix Bergsson og Margrét Blöndal
Fram og til baka, 15. Apríl 2018. Frá Ísafirði
Umsjón Felix Bergsson og Margrét Blöndal
Felix var staddur á Ísafirði og sendi út úr hljóðveri útvarpsins þar.
Lag dagsins - Blondie, Denis frá 1978. Fyrsta lagið sem Blondie kom almennilega á vinsældarlista og markaði upphafið á sigurgöngu hljómsveitarinnar.
Fimman - Benedikt Sigurðsson tónlistarmaður Bolungarvík sagði okkur frá fimm einstaklingum sem hafa haft djúp áhrif á líf hans.
Hólmfríður Vala Svavarsdóttir, hótelstjóri á Hótel Ísafirði kom í spjall. Hún er frá Ólafsfirði og hefur ásamt eiginmanni sínum Daníel Jakobssyni komið sér og sínum vel fyrir á Ísafirði. Hún stendur fyrir skemmtlegum ferðum fyrir konur sem koma vestur til að læra að ganga á skíðum.
Fréttagetraun - sigurvegari var Sveinn Guðfinnsson Akureyri
Timaflakk 1968, 78, 88, 98
Í tímaflakki dagsins hverfðist allt um þann 15. apríl árin 1968, 78, 88 og 98. Tónlistin var auðvitað í aðalhlutverki og þar mátti rifja upp kynnin af Hljómsveit Ólafs Gauks, Cliff Richards, Chuck Mangione, Bee Gees, Mannakorn, Bros, Prefab Sprout og Lhooq svo einhverjir séu nefndir. Við heyrðum í aflakló frá Vestmannaeyjum, kynntumst fólkinu í Skötuvík og Amy Engilberts las í lófa Friðriks Sófussonar.
Fram og til baka 20.05.2018
Umsjón Felix Bergsson og Margrét Blöndal
Lag dagsins - Cars - Gary Numan frá árinu 1980
Fimman - Máni Svavarsson sem valdi að fjalla um plötur sem hafa lifað með honum í gegnum lífið
ABBA - Arrival 1976
Lag: My love, my life
Þarna var maður byrjaður að móta sér tónlistarsmekk.
Ég man eftir því að hlaupa heim úr skólanum - stelast inn í herbergi eldri systir minnar , taka plötur og hlusta á þær í heild með heyrnatólum - og lesa á umslagið um leið.
Hún átti þessa plötu og ég eyðilagði hana næstum því með ofspilun.
Þetta lag er ekki þekktasta lagið af plötunni, en lag sem ég man mjög sterkt eftir.
KRAFTWERK - Computerworld 1981
Lag: Computer world
14 ára á kafi í nýbylgju rokki og pönki.
Á þessum tíma voru spiluð lög á undan fréttum í sjónvarpi - og bara mynd af klukku.
Einhver tæknimaður hjá sjónvarpinu spilaði þessa plötu - nokkrum sinnum á undan fréttum.
Líf mitt breyttist þegar ég heyrði þetta - fór að kaupa trommuheila og syntha í framhaldinu.
PRINCE - Purple rain - 1984
Lag: I would die 4 u
Það er svo mikið af tónlist frá þessum tíma sem að hafði áhrif á mann að það er varla hægt að telja það upp. En Prince er einn af þeim fáu sem er ennþá „settur á fóninn“.
PREFAB SPROUT - Jordan the comeback 1990
Lag: We let the stars go
Á þessum tíma vann ég í fataverslun í Kringlunni. Yfirmaðurinn lét mig fá pening og sagði mér að fara upp í Skífu og kaupa nokkra diska til að spila í búðinni. Ég vissi lítið sem ekkert um Prefab Sprout - en sölumaðurinn sagði mér að þetta væri góður diskur. Hann rúllaði síðan daglega í búðinni - og fljótlega kunni ég hvert einasta lag uppá 10. Þetta er ennþá einn af mínum uppáhalds diskum og ég hlusta á hann reglulega.
SÖNGLEIKIR - 2007
Les Miserables - Sweeny Todd - Jersey Boys
Lag: Franki Valli and the four seasons - Oh what a night
Segi söguna frá því hvernig ég kynntist söngleikjum árið 2007 - og hvernig ég gerði mér grein fyrir því að tónlist getur sagt sögu í gegnum melódíur.
Eurovision uppgjör
Gestir í hljóðveri:
Laufey Helga Guðmundsdóttir
Friðrik Ómar Hjörleifsson
Einar Bárðarson
Símtöl :
Þórunn Erna Clausen
Sigurður Gunnarsson
Helga Möller
Our Choice
Toy - Netta
Fuego - Kýpur
Austurríki - Nobody but you
Storm - Bretland
Moldóva (Friðrik Ómar)
Ítalía - non mi avete fatto niente (Einar)
Þýskaland - You let me walk alone
Búlgaría - Bones
Danmörk - Higher Ground
Frakkland - Mercy
Fram og til baka 1960, 70, 80 og 90
Í tímaflakki dagsins var haldið til áranna 1960, 70, 80 og 90. Við heyrðum útvarpsþátt frá 1960 um þátttöku k
Umsjón Felix Bergsson og Margrét Blöndal
Lag dagsins - RAH band - Clouds Across The Moon
Fimman - Júlí Heiðar Halldórsson leikari og tónlistarmaður sem talaði um fimm áhrifarík augnablik í lífi sínu
Viðtal - sveitarstjórnarkosningar 2018 - Fanney Birna Jónsdóttir blaðamaður
Fréttagetraun - sigurvegari Jóhanna Gísladóttir
Tímaflakkið, 33. Þáttur
1965, 1975, 1985 og 1995
Bergsson og Blöndal halda óvísindalegri yfirreið sinni yfir fortíðina áfram í Fram og til baka og að þessu sinni er komið niður í síðustu viku maímánaðar ári 1965, 1975, 1985 og 1995.
Brynjólfur Jóhannesson leikari ræðir við Mattías Jóhannessen og Lénharður fógeti gerði gagnrýnanda Mánudagsblaðsins alveg vitlausan. Þátturinn Í sumarbyrjun var í sjónvarpinu í maí 1985 og svo trúlofaði danski krónprinsinn sig henni Alexöndru sem er af kínverskum ættum!
Fram og til baka
03.06.2018 - sjómannadagurinn
Umsjón - Felix Bergsson og Margrét Blöndal
Lag dagsins - Luka, Suzanne Vega frá 1987 var á vinsældarlista Rásar 2
Fimman - Guðrún Hálfdánardóttir blaðamaður. Fimm eftirlætis lög sem skilja eftir minningar.
Fyrsta lagið er Agnes og Friðrik með Bubba Morthens
2. Imagine með John Lennon
3. Passenger með Iggy Pop
4. Psycho killer með Talking Heads
5. California Dreamin með The Mamas & the Papas
Viðtal - sjómannadagurinn í fortíð og nútíð
Andri Ómarsson verkefnastjóri hjá Hafnarfjarðarbæ
Fréttagetraun - sigurvegari Aðalbjörn Ásgeirsdóttir, Stóru Mörk 3, 861 Hvolsvöllur
Timaflakkið 1967, 77, 87, 97
Bergsson og Blöndal fóru á sitt vikulega tímaflakk og komu niður á árunum 1967, 77, 87 og 97.
Jónas Fr Jónsson kom nokkuð við sögu, árið 1977 sem ungur höfundur lesendabréfs sem fjallaði um mikilvægi þess að það væri meiri fótbolti í sjónvarpinu og 1997 sem framkvæmdastjóri viðskiptaráðs. Þá heyrðist hljóðdæmi úr sjónvarpsþætti Óðmanna frá 1967 og Ísraelarnir Datnir og Kushnir auk Rósu Ingólfsdóttur komu við sögu árið 1987.
Fram og til baka 10.06.2018
Umsjón Felix Bergsson og Margrét Blöndal
Lag dagsins - Jimmy með hljómsveitinni Moriarty
Fimman - Áslaug Hulda Jónsdóttir bæjarfulltrúi í Garðabæ
Fimm upplifanir sem hafa breytt lífi hennar!
Konur og kvenorka. Fyrirmyndirnar
Matur
Veiðiskapur
Skíði
Vinirnir og fjölskyldan
Högni Egilsson - Tónleikar á Listahátíð með verkum Jórunnar Viðar
Fréttagetraun (ath vinning)
Sigurvegari Garðar Valur Jónsson Reykjavík
Tímaflakkið 1961, 1971, 1981 og 1991
Í tímaflakki dagsins voru árin 1961, 71, 81 og 91 heimsótt. Þar mátti heyra í fallhlífarhermanninum Júlíusi Magga Magnús og af mótmælum vegna flugvallar á Álftanesi. Hárið á Díönu kom við sögu og eins Lödukaup rússneskra sjómanna. Tónlistin var sú vinsælasta frá þessum tímum.
Umsjón Felix Bergsson og Margrét Blöndal
Lag dagsins - When Doves Cry, Prince. Gríðarlega vinsælt í júní/júlí árið 1984.
Fimman - Valur Freyr Einarsson leikari og Grímuverðlaunahafi
Fimman hans voru fimm hafnanir sem hann hafði orðið fyrir en breyttu lífi hans.
1. Menntaskólahöfnun - vildi fara í Verzló en endaði í MR.
2. Leiklistarskólinn - komst ekki inn og fór því í skóla í Manchester
3. Fastráðning í Borgarleikhúsinu - gekk aldrei í gegn og hann fór í Þjóðleikhúsið í staðinn og ferillinn fór vel af stað.
4. Söngleikurinn Rent - honum var boðið hlutverk en hafnaði því fyrir Litlu hryllingsbúðina.
5. Missti vinnuna í Borgarleikhúsinu og stofnar þá CommonNonsense sem átti eftir að gjörbreyta lífi hans
Fréttagetraun eftir Árna Frey Magnússon. Sigurvegari Jakob Viðar Guðmundsson í Kópavogi
Tímaflakkið 1964, 1974, 1984, 1994
Við heyrðum af æsispennandi dagskrá þjóðhátíðardagsins árið 1964 en þar var Azkenazy og karlakórinn Fóstbræður í forgrunni. Árið 1974 kastaði Helgi Hóseason tjöru í stjórnarráðið og árið 1984 voru Stiklurnar hans Ómars það vinsælasta í sjónvarpinu. Árið 1994 var kólumbískur knattspyrnumaður skotinn fyrir slaka frammistöðu á vellinum og Íslendingar rifust við Norðmenn um veiðiréttindi við Svalbarða.
Fram og til baka 24.06.2018
Umsjón Felix Bergsson og Margrét Blöndal
Lag dagsins - James Blunt / You're Beautiful
Fimman - Valgerður Guðnadóttir söngkona
Bowie
Kate Bush
Nina Simone
Hárið
John Barry
Viðtal - Bryndís Sigurðardóttir Ömmukaffi á Blönduósi
Fréttagetraun eftir Árna Frey Magnússon Sagnfræðing
Sigurvegari Sveinn Guðfinnsson á Akureyri
Tímaflakkið með Bergsson og Blöndal
1968,1978, 1988, 1998
Í tímaflakki dagsins fóru Bergsson og Blöndal víða. Leikurinn hófst með forsetakosningum árið 1968 og árið 1978 talaði Jónas Jónasson við 10 ára polla á bryggjunni í Garði. Þau rifjuðu upp að kennitölur voru teknar upp í Evrópu í þessari viku árið 1988 og umræður um tvöþúsund vandann voru orðnar háværar árið 1998.
Fram og til baka 19. ágúst 2018 kl. 8.05 - 10.00
Umsjón - Felix Bergsson
Lag dagsins - Kærleikur og tími með KK
Fimman - Gróa Ásgeirsdóttir forsvarskona Á allra vörum
Fimm atburðir tengdir Á allra vörum sem hafa haft mikil áhrif á Gróu
Gestur Felix Bergssonar í Fram og til baka á Rás 2 var Gróa Ásgeirsdóttir, markaðsstjóri Air Iceland Connect og forsvarskona átaksins Á allra vörum. Gróa rifjaði upp fimm atvik sem tengdust Á allra vörum og því magnaða ferðalagi sem hófst þegar hún hafði greinst með brjóstakrabbamein árið 2007
Atvikin fimm eru:
1. Upphafið - Þegar Gróa áttaði sig á því að það væri hægt að finna sóknarfæri í erfiðri stöðu
2. Hlátursköst og fíflalæti og hversu nauðsynlegt það er að hafa gaman þó viðfangsefnið sé stundum erfitt - Gróa rifjaði upp þegar Andri Freyr klippti Dorrit forsetafrú í beinni útsendingu en lokkur úr hári hennar var boðinn upp.
3. Hvernig verkefnin veljast. Fundur með Birni Zoega þá forstjóra LSH þegar þau ákváðu að safna fjármunum fyrir neyðarmóttöku Geðdeildar.
4. Tilangurinn með öllu vafstrinu. Gróa sagði frá upplifun sinni í fyrra þegar hún kom í fyrsta sinn í Kvennaathvarfið
5. Stuðningur þjóðarinnar og samstarfsaðila er stundum yfirþyrmandi. Gróa sagði frá vinnu við sjónvarpsauglýsingu við Heklurætur
Viðtal - Hallgrímur Bergsson tónlistarmaður en hann heldur tónleikar til styrktar Einsökum börnum í Salnum 31 ágúst. Tónleikarnir bera yfirskriftina Óskin mín en það er nafnið á laginu sem Hallgrímur átt í Söngvakeppninni 2018 og Rakel Pálsdóttir söng.
Fréttagetraun - sigurvegari Hjálmar Örn Jóhannsson
Comments
Top Podcasts
The Best New Comedy Podcast Right Now – June 2024The Best News Podcast Right Now – June 2024The Best New Business Podcast Right Now – June 2024The Best New Sports Podcast Right Now – June 2024The Best New True Crime Podcast Right Now – June 2024The Best New Joe Rogan Experience Podcast Right Now – June 20The Best New Dan Bongino Show Podcast Right Now – June 20The Best New Mark Levin Podcast – June 2024
United States