DiscoverFókus
Fókus
Claim Ownership

Fókus

Author: DV

Subscribed: 101Played: 2,461
Share

Description

Fókus er birtur í hljóði og mynd vikulega á dv.is. Þátturinn er í umsjón Guðrúnar Óskar Guðjónsdóttur.
109 Episodes
Reverse
Gestur þáttarins er ísdrottningin Ásdís Rán. Umsjón hefur Guðrún Ósk Guðjónsdóttir blaðamaður.
Við vörum við efnisinnihaldi þáttarins, fjallað er um ofbeldi, kynferðisofbeldi, fíkniefnaneyslu og sjálfsvíg. Kokkurinn og hnefaleikastjarnan Kara Guðmundsdóttir er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Saga Köru er lituð af áföllum og erfiðleikum, en þetta er líka sigursaga og vonarsaga fyrir fólk í svipuðum aðstæðum og ástvini þeirra.
Áhrifavaldurinn Steffý Þórólfsdóttir upplifði erfiða tíma á sinni fyrstu meðgöngu. Hún var illa stödd andlega, meðal annars vegna áreitis og eineltis, og hafði miklar áhyggjur af því hvort að það myndi hafa áhrif á frumburðinn í móðurkviðnum. Hún hefur fjallað um þessa reynslu sína á samfélagsmiðlum, svo athygli hefur vakið, og segir að tilgangurinn hafi verið sá að vekja fólk til umhugsunar um mikilvægi þess að huga að andlegri heilsu mæðra.Steffý er gestur í Fókus, viðtalsþætti DV, þar sem hún fer ítarlega yfir þetta tímabil, hvernig það byrjaði og þróaðist. Hún deilir sinni upplifun og áhrifunum sem þetta hafði á hana. Hún þakkar sérstaklega Píeta samtökunum og Bjarkarhlíð fyrir hjálpina og stuðninginn.
Einkaþjálfarinn, athafnakonan og áhrifavaldurinn Hafdís Björg Kristjánsdóttir er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Fókus snýr aftur eftir sumarfrí og í fyrsta þætti ræðir Hafdís einlæg um að finna sig eftir erfiðleika, vinkonumissi og hvernig er að verða fyrir netníði þegar hún var á dimmum stað.Hún opnar sig einnig um æskuna, að verða móðir ung og fæðingarþunglyndi.
Söng- og leikkonan Þórdís Björk Þorfinnsdóttir ræðir um mörgu hliðar móðurhlutverksins, tónlistar- og leiklistaferilinn, harkið og gamanið, ástina og lífið með ADHD í Fókus, viðtalsþætti DV.
Myndlistarkonan Helena Reynisdóttir flutti heim til Íslands frá Berlín eftir um fimm ára dvöl. Flutningurinn markaði ákveðin tímamót í lífi hennar. Þá var hún nýkomin úr fimm ára sambandi þar sem hún var beitt andlegu ofbeldi. Hún ákvað nýlega að stíga fram í myndbandi á TikTok og viðbrögðin létu ekki á sér standa. Andlegt ofbeldi er gjarnan falið, tabú að tala um og mikil skömm sem getur fylgt því, en þó hún hafi ekki verið með líkamlega áverka þá var hún undir lok sambandsins búin að missa mikla þyngd, byrjuð að missa hárið og komin með útbrot um líkamann. Orkan nánast engin en erfiðast var að horfast í augu við að hún væri í ofbeldissambandi. Helena hefur alla tíð verið sjálfsörugg með sterkt bakland og datt aldrei í hug að hún gæti lent í þessum aðstæðum. En það er einmitt ástæðan fyrir því að hún ákvað að stíga fram og segja sögu sína í Fókus, viðtalsþætti DV. Hún vill vekja athygli á einkennum andlegs ofbeldis og vonandi hjálpa einhverjum í sömu stöðu.
Hárgreiðslumeistarinn Hermann Óli Bachmann Ólafsson er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV.Hann ræðir um hvernig það var að alast upp sem samkynhneigður strákur þegar hommi var álitið niðrandi og ljótt orð. Hann ræðir einnig um hárgreiðsluferilinn og fyrirtækjareksturinn, sem hefur verið eins og rússíbani á köflum.Hermann opnar sig í einlægur um persónuleg mál, eins og barneignaferlið sem breyttist í þriggja ára martröð og skilnaðinn sem lífgaði hann við. Hann segir að það sem gerði útslagið var þegar hann heyrði að þáverandi eiginmaður hans hafði sagt öðrum karlmönnum að Hermann væri látinn til að auðvelda framhjáhaldið.
Tónlistarmaðurinn og kennarinn Svavar Elliði Svavarson kom nýlega heim frá Istanbúl í Tyrklandi, þar sem hann gekkst hann undir hárígræðslu á höfði.Hann segir frá öllu ferlinu, aðgerðinu og batanum í þættinum. Hann ræðir einnig stuttlega um tónlistarferilinn og fyrsta stefnumótið með unnustu sinni, sem byrjaði ansi erfiðlega en hann náði að rétta skútuna af og eiga þau í dag son.
Fanney Skúladóttir, markaðsstjóri, er gestur vikunnar í Fókus.Fanney varð móðir ung. Hún var ólétt af sínu fyrsta barni sautján ára gömul, en sonur hennar er einmitt sautján ára í dag. Áratugur leið þar til hún eignaðist annað barn, en hún eignaðist tvær stúlkur með árs millibili. Fanney hefur því bæði átt börn með löngu millibili og svo mjög stuttu og hún segir að hið síðarnefnda hafi vissulega verið mikið hark fyrstu árin.Samhliða barneignum hefur Fanney menntað sig og hlustað á innsæið um hvaða stefnu skal næst taka. Hún er stjórnmálafræðingur með MPA í opinberri stjórnsýslu, förðunarfræðingur, og með MS í markaðsfræði. Í dag starfar hún sem markaðstjóri Blush, heldur úti hlaðvarpinu Tvær á floti ásamt vinkonu sinni Söru Alexíu og deilir efni á Instagram og TikTok þar sem hún nýtur vinsælda.Fanney ræðir í þættinum um móðurhlutverkið. Hvernig var að vera ung móðir og að eignast síðan tvö börn með stuttu millibilli. Hvernig hún týndi sér sjálfri í hlutverkinu en fann sig á ný. Hvernig lífið breytist eftir þrítugt og hvaða ráð hún gefur öðrum konum í sömu stöðu.Allt þetta og mikið meira í þætti vikunnar.
Dimmey Rós Lúðvíksdóttir valdi hinseginleikann sem málstað til að vekja athygli á þegar hún keppti í Ungfrú Ísland í byrjun apríl. Hún þekkir það af eigin raun að verða fyrir fordómum en hún og kærasta hennar hafa þurft að þola mótlæti og áreiti vegna sambands þeirra. Dimmey er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV.
Garðar Eyfjörð hefur glímt við margskonar fíkn frá unglingsaldri og verið umkringdur alkóhólistum og fíklum allt sitt líf. En hann segir að það sé ein fíkn sem er verst, spilafíknin.Garðar birti myndband á TikTok fyrir stuttu þar sem hann ræddi um spilafíkn og vandanum sem blasir við okkur í dag þegar áhrifavaldar, rapparar og önnur þekkt andlit eru fengin til að auglýsa fjárhættu- og veðmálafyrirtæki og virðist markhópurinn aðallega vera ungir karlmenn. Garðar segist vita til þess að drengir í níunda og tíunda bekk í grunnskóla séu að veðja í stærðfræðitímum.Hreinskilið og hispurslaust myndband Garðars vakti mikla athygli og er hann mættur í Fókus, viðtalsþátt DV, til að ræða um eigin reynslu af sjúkdómnum, baráttunni og batanum. Hann brennur fyrir að vekja athygli á málefninu en hann óttast um heilsu og líðan þeirra sem er verið að soga í þennan heim með fölskum loforðum um peninga og skemmtun. Hann segir þetta grafalvarlegt og hættulegt, en hann þekkir það vel. Hann hefur sjálfur komið nálægt því að taka eigið líf og hefur misst vin vegna sjúkdómsins.
Snædís Xyza Mae Jónsdóttir er margverðlaunaður matreiðslumeistari og hefur verið hluti af íslenska kokkalandsliðinu frá árinu 2016. Hún var fyrirliði liðsins á heimsmeistaramótinu árið 2018 og á Ólympíuleikunum árið 2020 og kom þá Íslandi á verðlaunapall. Í dag starfar hún sem yfirmatreiðslumaður á Fröken Reykjavík Kithen & Bar og þjálfar íslenska kokkalandsliðið samhliða.Árangur Snædísar er magnaður en hún hefur þurft að vaða eld og brennistein til að komast á þann stað sem hún er í dag. Snædís segir frá stormasamri æsku sem einkenndist af ofbeldi af hálfu móður hennar. Hún lýsir einnig upplifun sinni af fósturkerfinu sem átti að bjarga henni en þar varð hún fyrir ofbeldi sem endaði með að gerandi hennar var dæmdur. Á síðasta fósturheimilinu komst hún að því að fjölskyldufaðirinn hafði dæmdur fyrir manndráp og eftir það fékk hún að búa ein. Hún þurfti því að læra ung að sjá um sig sjálfa en lét það ekki stoppa sig.Snædís ákvað að fara í kokkanám þegar hún var 25 ára og fór boltinn mjög fljótlega að rúlla og hefur hún verið einn fremsti kokkur okkar Íslendinga í mörg ár.
Katrín Björk Birgisdóttir, naglafræðingur, YouTube-ari, og sérlegur áhugamaður um sparnað, er gestur vikunnar í Fókus. Hún deilir góðum og einföldum sparnaðarráðum sem allir geta nýtt sér. 
Fegurðardrottningin Sóldís Vala Ívarsdóttir var valin Ungfrú Ísland 2024 í ágúst í fyrra. Hún fór til Mexíkó og keppti fyrir hönd Íslands í Miss Universe og segir ferlið hafa kennt henni margt, eins og að standa með sjálfri sér.Sóldís var yngsti keppandinn úti í Mexíkó og segir að hún hafi alveg þurft að leggja hart að sér til að vinna sér inn virðingu annarra keppanda sem litu á hana hornauga sökum aldurs , en hún lét það ekki stoppa sig og hélt ótrauð áfram.Sóldís er hvergi hætt og mun keppa fyrir hönd Ísland í Miss Earth í ár. Næsta mál á dagskrá er að krýna nýja Ungfrú Ísland þann 3. Apríl næstkomandi í Gamla Bíó. Sóldís ræðir um Ungfrú Ísland ferlið, hvað hún lærði á árinu, hvaða málefnum hún brennur fyrir og svo ótal margt fleira í þættinum.
Fasteignasalinn og vaxtaræktarkappinn Árni Björn Kristjánsson er gestur vikunnar í Fókus.Árni lifði og hrærðist í CrossFit-heiminum í rúmlega tólf ár. Hann æfði, keppti og þjálfaði en lífið breyttist fyrir nokkrum árum. Hann fór að huga meira að andlegri heilsu, fór til sálfræðings og fór að líta meira inn á við. Hann færði sig yfir í vaxtarrækt og er nú að undirbúa sig fyrir fyrsta mót sitt í vaxtarrækt.Hann hefur lengi verið duglegur að deila lífi sínu á samfélagsmiðlum. Um tíma var það allt tengt CrossFit en eins og lífið breyttist, breyttist efnið sem hann deildi. Hann er óhræddur við að berskjalda sig, deila gleðistundum sem og erfiðum augnablikum, stíga út fyrir boxið og sýna það sem aðrir eru ekki vanir að sjá, sem á það líka til að stuða fólk. Árni Björn ræðir þetta allt saman, sjálfsvinnuna, samband þeirra hjóna sem hefur þróast yfir árin og svo margt annað í þættinum.
Frumkvöðullinn Kristjana Björk Barðdal er gestur vikunnar í Fókus, spjallþætti DV.Hún er að stofna nýtt fyrirtæki með Guðmundi Birki Pálmasyni, betur þekktur sem Gummi Kíró, en hún hefur verið að starfa sem umboðsmaður hans síðan í sumar. Nú opna þau áhrifavaldaumboðsskrifstofuna Atelier Agency.Kristjana ræðir um þetta nýja ævintýri, ferðalagið sem skilaði henni á þann stað sem hún er í dag, lífið og tilveruna í skemmtilegum þætti vikunnar.
Söngkonan Birgitta Ólafsdóttir, eða BIRGO eins og hún er betur þekkt, söng sig inn í hjörtu landsmanna og Eurovision aðdáenda um alla Evrópu á fyrra undanúrslitakvöldi Söngvakeppni sjónvarpsins. Það er óhætt að segja að Eurovision samfélagið hafi nötrað eftir að hún komst ekki áfram í úrslit í kjölfar símakosningar.Birgitta er gestur vikunnar í Fókus og ræðir um keppnina, viðbrögð fólks, þakklætið sem hún finnur fyrir og hvernig hún lítur björtum augum fram á veginn.Það var alltaf draumur hennar og ömmu hennar að taka þátt í Eurovision. Amma hennar lést sama kvöld og undanúrslitin voru en náði að sjá Birgittu stíga á svið. „Hún fékk að sjá mig og kvaddi svo þennan heim,“ segir Birgitta.
Hera Rún Ragnarsdóttir er leikkona, athafnakona, hlaðvarpsstjórnandi, móðir og svo margt meira.Í þættinum opnar hún sig um erfiða æsku, eineltið sem mótaði hana og hvernig henni tókst að vinna sig í gegnum það. Hún leggur áherslu á mikilvægi þess að tala um einelti en hún glímdi við sjálfsvígshugsanir sem barn sem henni finnst skelfileg tilhugsun.  Hún segir frá sjálfsvinnunni sem hún hefur verið í síðastliðin ár, hvað hafi hjálpað henni og hvenær hún ákvað að breyta lífi sínu og hvernig hún kom sér á þann stað sem hún er í dag.Hera ræðir einnig um hvernig var að koma úr þrettán ára sambandi og á „markaðinn“ aftur, hvernig hún kynntist kærasta sínum og hvernig lífið leikur við þau í dag.Ekki nóg með það þá hefur Hera staðið í alls konar fyrirtækjarekstri í gegnum árin og segir hún okkur dýrmætustu lexíuna sem hún hefur lært.Allt þetta og meira í nýjasta þætti af Fókus.  
Kynlífs- og sambandsmarkþjálfinn Þórhildur Magnúsdóttir er gestur vikunnar í Fókus, spjallþætti DV.Þórhildur er fyrsti gestur Fókuss til að koma aftur en mikið hefur gerst síðastliðna átján mánuði.Hún hefur sankað að sér meiri þekkingu og er að klára markþjálfaranám. Hún byrjaði að iðka tantra sem hefur verið eins konar rauði þráðurinn í lífi hennar í gegnum árin. Í þættinum ræðir hún um þjálfunina, hvers konar fólk leitar til hennar í sambandsmarkþjálfun, þemu sem hún hefur tekið eftir, að finna frelsi með með tantra og margt fleira.Þórhildur og eiginmaður hennar fögnuðu átján ára sambandsafmæli og ræðir hún um það hvernig þau halda neistanum gangandi eftir öll þessi ár.Átta ár eru liðin síðan þau opnuðu sambandið og hefur Þórhildur verið í sambandi með Marcel í um eitt og hálft ár. Hún ræðir um sambandið, hvað gerir gott kynlíf gott og svo ótal margt fleira
Viðskipta- og markaðssérfræðingurinn Valgerður Anna Einarsdóttir, kölluð Vala, er gestur vikunnar í Fókus.Vala hannaði Lífið er núna húfurnar í ár fyrir Kraft, sem er stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendur þeirra. Hönnun húfanna er innblásin af verkum systur Völu, Þórunnar Maríu Einarsdóttur, sem var prjónahönnuður og listakona undir nafninu Tóta Van Helzing. Tóta lést eftir erfiða og hetjulega baráttu við krabbamein í desember 2021.Í mjög einlægu viðtali segir Vala frá systur sinni, sköpunarkraftinum og ótrúlegu hæfileikum hennar að skapa eitthvað einstakt. Hún ræðir um baráttu Tótu við krabbameinið, símtalið sem engin systir vil fá og kveðjustundina sem kom allt of snemma. Vala hefur síðastliðin ár haldið áfram með verkefnið Tóta Van Helzing og haldið lista- og tískusýningar með verkum Tótu. Nú stendur yfir listasýning, House of Van Helzing, í Rammagerðinni við Laugaveg 31. Lífið er núna húfurnar má kaupa í Rammagerðinni, Hagkaup, Krónunni og á Lifidernuna.is.
loading
Comments