Að fylla í tómarúmið - Bríet Ósk
Description
Í dag heyri ég í henni Bríeti.
Bríet á sína sögu sem hún deilir með okkur á hjartnæman hátt.
Að fylla í tómarúmið eða að eltast við það að búa til stöðutákn lífsins reyndist henni erfitt. Fíknin kom snemma fram í henni og hún talar opinskátt um baráttu sína við matarfíkn sem verður stjórnlaus.
Bríet fer yfir það með mér hvernig slæmur tími leiðir hana áfengisdrykkju sem verður svo stjórnlaus á skömmum tíma.
Áhugaverðast er svo saga hennar af batanum. Hún er mjög öflugur sterkur einstaklingur sem tekur daginn í dag föstum tökum. Það er aðdáunarvert að heyra hana tala um hvernig batinn hefur breytt henni í einstakling sem kann að hlusta og vera til staðar fyrir aðra.
Afar hollt og gott að hlusta á Bríeti sem er ein af oss 🙏
Guð gefi mér æðruleysi,
til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt,
kjark til að breyta því sem ég get breytt,
og vit til að greina þar á milli 🙏