Horfðu til himins - Halldór Steinn
Description
Í dag heyri ég í honum Halldóri Steini
Halldór Steinn var í vandræðum með áfengi frá fyrsta sopa
Hann fer yfir það með mér hvernig ákveðið stjórnleysi og vandræðagangur í æsku leiðir hann inn í drykkju sem litaðist strax af óreiðu.
Halldór fer á heiðarlegan hátt hvernig hann drykkjan varð verri og verri þangað til hann gat ekki meir.
Fyrir framan hann lá ákörðun sem getur reynst mörgum svo erfið "Ég þarf að hætta að drekka og ég þarf hjálp við það því ég get það ekki sjálfur "
Það er svo hollt og gott að hlusta á leiðina frá uppgjöfinni, inná Vog og svo leiðina inn í batann.
Frábært spjall við hugrakkan einstakling sem leggur sína sögu fram fyrir okkur hin.
Halldór Steinn er einn af oss 🙏
Guð gefi mér æðruleysi,
til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt,
kjark til að breyta því sem ég get breytt,
og vit til að greina þar á milli 🙏