DiscoverSpegillinnDómsmálaráðherra um rafbyssur og vegur rofinn vegna asahláku
Dómsmálaráðherra um rafbyssur og vegur rofinn vegna asahláku

Dómsmálaráðherra um rafbyssur og vegur rofinn vegna asahláku

Update: 2023-01-19
Share

Description

Spegillinn 19. janúar 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn útsendingar: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir.

Kona á fertugsaldri varð úti ofarlega í Mosfellsbæ í óveðrinu sem gekk yfir rétt fyrir jól.

Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra segir að heimild til lögreglu um notkun rafbyssa sem gefin var undir áramót hafi verið lengi í undirbúningi og enginn feluleikur um reglubreytingar. Ákvörðunin sé ráðherrans en hann sé ávallt reiðubúinn að ræða málin.

Auknar líkur eru á flóðum vegna asahláku á morgun og færð gæti spillst. Vegagerðin rýfur Skeiða- og Hrunamannaveg við nýja brúi sem er í smíðum yfir Stóru-Laxá til að verja hana. Anna Lilja Þórisdóttir segir frá.

Stjórnvöld í Úkraínu segja tímabært að vestræn ríki óttist ekki Pútín og sendi hergögn, þrátt fyrir viðvaranir Rússa. Rebekka Líf Ingadóttir tók saman.

Tölvuþrjótar brutust inn í tölvukerfi Háskólans á Akureyri og komust yfir upplýsingar um alla notendur þess. Amanda Guðrún Bjarnadóttir ræddi við Óskar Þór Vilhjálmsson, skrifstofustjóra kennslumiðstöðvar skólans.

Landsnet heldur um þessar mundir opna kynningar- og samráðsfundi vegna fyrirhugaðrar lagningar Blöndulínu þrjú. Álit Skipulagsstofnunar á umhverfismati línunnar er meðal annars á dagskrá. Ágúst Ólafsson sagði frá.

Ólafur Darri Ólafsson leikari er einn fjögurra kvikmyndagerðarmanna sem stendur að nýstofnuðu framleiðslufyrirtæki sem hefur fengið nafnið ACT4 ( act four). Ætlunin er að þróa og fjármagna íslenskt sjónvarpsefni fyrir alþjóðamarkað. Júlía Margrét Einarsdóttir ræddi við hann.
------------
Lengi hafur verið kallað eftir að tryggja betur öryggi lögreglumanna segir Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra. Reynslan sýni að slysum á lögreglumönnum við störf fækki verulega þegar þeir búi yfir rafvarnarvopnum. Breytingar á reglum um vopnanotkun og valdbeitingu sem leyfir rafbyssur. Þær verði komnar í gagnið eftir eitt til tvö ár. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hann.

Þingmenn og aðrir frammámenn Verkamannaflokksins á Nýja Sjálandi sátu sem þrumu lostnir þegar Jacinda Ardern forsætisráðherra tilkynnti óvænt á landsfundi flokksins í dag að hún hefði ákveðið að segja af sér nánast samstundis. Fréttamenn á staðnum segja að þeir hafi verið eins og í sprengjulosti eftir að hún lauk máli sínu.
Comments 
00:00
00:00
x

0.5x

0.8x

1.0x

1.25x

1.5x

2.0x

3.0x

Sleep Timer

Off

End of Episode

5 Minutes

10 Minutes

15 Minutes

30 Minutes

45 Minutes

60 Minutes

120 Minutes

Dómsmálaráðherra um rafbyssur og vegur rofinn vegna asahláku

Dómsmálaráðherra um rafbyssur og vegur rofinn vegna asahláku