Elísabet Margeirsdóttir - Ofurhlaupari
Description
Elísabet Margeirsdóttir ofurhlaupari var fyrsta konan í heiminum til að klára 400km Ultra-Gobi maraþonið undir 100 klukkustundum.
Elísabet fer yfir feril sinn, hvernig hún byrjaði að hlaupa yfir í að vera í eigenda hóps Náttúruhlaupa og hvað starfið er fjölbreytt þar. Elísabet hefur 14 sinnum farið í Laugavegshlaupið, hún segir aðeins frá reynslu sinni úr hlaupinu.
Bakgarðurinn hófst 4. maí og lauk þann 6. maí, það var stórskostleg keppni, Elísabet ræðir keppnina, hvernig Bakgarðurinn byrjaði á Íslandi og hvað er frammundan. Það er að mörgu að huga þegar hlaup er haldið í nokkra sólahringa, en gæti verið von á einhverjum breytingum á Bakgarðinum?
Þá ræðir hún hvernig er hægt að undirbúa sig fyrir svona stór hlaup eins og Laugavegshlaupið og Bakgarðurinn.
Þetta er þáttur sem hlaupasamfélagið ætti ekki að missa af!
Þátturinn er í boði Útilífs, Heilsuhillunnar, Hafið fiskverslun og GoodGood.
Þú finnur okkur á instagram
@klefinn.is
@siljaulfars
@elisabetm
@natturuhlaupin