Jóhann Jóhannsson, Game of Trones, Radiohead
Update: 2016-08-23
Description
Staðfest hefur verið að Jóhann Jóhannsson mun semja tónlistina við sjálfstætt framhald af kvikmyndinni Blade Runner. Jóhann veitti Lestinni einkaviðtal af þessu tilefni. Hann segir verkefnið mjög spennandi því upprunalega Blade Runner sé merkilegur menningarlegur póstur í kvikmyndasögunni. Framhaldsmyndinni verður leikstýrt af kanadamanninum Denise Villeneuve en þetta mun verða fjórða myndin sem þeir Jóhann vinna saman að. Myndin verður frumsýnd á næsta ári. Nína Richter kemur í þáttinn og ræðir um vinsældir Game of Thrones þáttaraðanna.
Smári McCarthy frumkvöðull og aðgerðasinni kynnir App dagsins, og hugað verður að tónlist: nýjasta plata ensku hljómsveitarinnar Radiohead, A Moon Shaped Pool, hefur hlotið góðar viðtökur, og er hljómsveitin meðal annars tilnefnd til bresku Mercury-verðlaunanna fyrir verkið, en verðlaunin verða afhent þann 15. september næstkomandi. Lestin spyr í dag: Er Radiohead mögulega besta hljómsveit í heimi?...

Comments
In Channel