Leikhorn: Saman í sandkassa
Description
Er ævintýrum Svörtu sanda lokið? Gæti verið að það sé pláss fyrir framhald og þar af leiðandi aðra seríu?
Í þessum hátíðlega aukaþætti Sandkorna taka þeir Tómas og Baldvin á móti helstu leikendum syrpunnar. Þau deila á milli sín sögum, fróðleiksmolum og nýtíðindum, allt sem að baki var og það sem bíður í nálægri (sem fjarlægri) framtíð.
Berlinale, sería tvö, leiktækni, undanþágur vegna Covid og væntingar og viðtökur áhorfenda eru á meðal umræðuefna, ásamt því hvort til séu náriðlar með hjarta, hvernig var fyrir alla að vinna í miðjum heimsfaraldri, ketilbjöllum Ævars Þórs o.fl.
Velkomin í Sandkassann (e. „cast-castið“). Þáttastjórnendur taka á móti Aldísi Amah Hamilton, Kolbeini Arnbjörnssyni, Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur, Þór Tulinius og Ævari víkingamanni.
Efnisyfirlit:
00:00 - Inngangur: Ævar víkingamaður
06:00 - Traust samband um ekkert traust
09:00 - Næmni Salómons
11:24 - Að vera eða vera ekki náriðill
13:20 - Harkan frá Se7en
19:00 - Eins og barn í nammibúð
22:00 - Elín og leikarainnistæðan
25:00 - Krúttlegasta lögga Íslandssögunnar
26:00 - Vinnufriður þökk sé COVID
30:20 - Hvað er svona merkilegt við Berlín?
35:40 - Þegar stórt er spurt um seríu tvö
36:30 - Samkennd og innsæi
42:35 - Geirar mega flokka sér
46:40 - Löggur eru líka fólk
48:40 - Kindin ógurlega; gúrme eða gubb?
50:50 - Kaldir dagar á setti og næstu kaflar
53:45 - Listin að túlka meingallað fólk
1:05:00 - Hver er EKKI morðinginn?
1:08:00 - Gústi, Raggi og útlendingahatrið
1:16:30 - Steinunn Ólína opnar sig
1:21:00 - Siðblinda og sterkur skúrkur
1:23:00 - Viskan, læknarnir og óvænt gjöf