#131 – Getur vont skap valdið flugslysum? Spjall um andlega heilsu og flugöryggi - Jóhann Pétur Wium Magnússon
Update: 2025-10-31
Description
Rætt er við Jóhann Pétur Wium Magnússon flugsálfræðing í tilefni af áhugaverðu erindi hans á flugöryggisráðstefnunni Reykjavik Flight Safety Symposium sem haldin var nýverið. Geðheilbrigðismál hafa á síðustu árum fengið meiri athygli í fluginu eins og víða annars staðar. Nýjar reglur hafa verið settar um eftirlit og flugrekendum einnig gert að hafa úrræði til staðar fyrir sitt starfsfólk. Jóhann Pétur segir að almennt sé fólk að vakna til vitundar um andlega heilsu og umræðan sé af hinu góða því hún vinni gegn fordómum.
Comments
In Channel























