Hlaupahjól, abstraktlist, Ásgeir Ingólfsson og Siegfried Sassoon
Update: 2017-07-25
Description
- Fjallað verður um japanska listamanninn Hokusai en nú stendur yfir stór sýning í breska þjóðarsafninu, British Museum, í London þar sem sjá má verk hans. - Hlaupahjólið er gömul aðferð til þess að ferðast á milli staða, saga þess er reifuð í dag. - Við grípum niður í útvarpið árið 1958 þar sem málsmetandi aðilar tókust á um ágæti abstraktlistar í þættinum Spurt og svarað. - Í þessum mánuði fyrir heilli öld síðan stóð fyrri heimsstyrjöldin sem hæst. Fjallað verður um stríðið, ekki síst í ljósi frægs bréfs sem breska ljóðskáldið Siegfried Sassoon skrifaði og lýsti andófi sínu á hernaðarbröltinu. - Og við heyrum í Ásgeiri H. Ingólfssyni sem hefur verið með kvikmyndapistla í Tengivagninn að undanförnu. Hann er nýkominn frá kvikmyndahátíðinni í Karlovy Vary og ætlar víða í pistli dagsins. Umsjónarmenn: Guðni Tómasson og Jóhannes Ólafsson.
Comments
In Channel